undirbúningur fyrir afmælið stendur yfir

þrif hér og þar og undirbúningur fyrir 6 ára afmælisveislu sem verður næstkomandi laugardag þá er ættingum boðið að koma,púkarnir sem eru orðin 6 ára 25 okt eru himinlifandi að hafa náð þessum merkta áfanga þau byrjuðu daginn á að biðja mömmu um vöfflur svona með súkkulaðinu eftir skóladaginn,að sjálfsögðu var móðir þeirra við þeirri bón og skellti þar að auki rjóma í fínu sprautuna og sulta plús heit súkkulaði sósa Joyful

en fyrst af öllu eftir skólann þá var drifið sig í smá klippingu það er að segja afmælisbörnin,daman fékk toppaklippingu og fléttur og stráksi lét laga hanakambinn og kamburinn litaður blár og appelsínugulur og þannig mætti hann á fótboltaæfingu strax eftir klippinguna,einhver óþarfa athyggli að hans sögn,VÁÁÁ flottur kambur.

á meðan daman var í stólnum þá loksins fór fyrsta framtönninn,var búin að missa tvær í neðri góm, sem hékk á engu,hún var búin að vera til trafala og tók sinn toll svona andlega seð,en viti menn stráksi var með lausa tönn í efri ekkert orðin mjög laus en stráksi vildi að sjálfsögðu ekki vera minni maður og tók þessa hálflausu tönn og brosti sínu breiðasta LoL

tannálfurinn sem sagt fékk tvær tennur og skellti tveimur gullpeningum undir hvorn koddann

kökubakstur er hafinn og hefur ein kakan litið dagsins ljós önnur bökuð í dag og skellt í frystir svo tvær á morgun og skreytt á laugardaginn og skellt á brauðtertur,

litla daman mun keppa á lýsismóti í fótbolta hér í bæ þann morguninn og hlakkar mikið til,

en húsfreyjan ætlar að láta staðar numið í dag,börnin eru búin í skólanum hálf tvö,

njótið þess sem er í boði Wink

kv húsfreyjan 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Anna Ágústa Bjarnadóttir

Höfundur

Anna Ágústa Bjarnadóttir
Anna Ágústa Bjarnadóttir

er heimavinnandi húsfreyja og hamingjusamlega gift,eigum þrjú börn fjölskyldan hefur mikin áhuga á ferðalögum og útivist,heilsurækt og hollum góðum mat,já vera saman með bjartsýnina að leiðarljósi

240 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 2488
  • IMG 2483
  • IMG 2233
  • IMG 2216
  • IMG 2211

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband