29.9.2008 | 21:55
vaknaði nokkrum sinnum í nótt en allir aðrir sofa
dálítið erfitt að vakna í morgun eftir að hafa glaðvaknað kl rétt rúmlega fimm og sofnað um sex aftur að það hefði kannski verið betra að fara bara á fætur en að sofna aftur í smá stund,en allt hafðist þetta nú og kl sjö voru allir komnir á fætur og gekk allt vel að koma börnum og bónda á sína staði á réttum tíma,svo var bara að skella sér í Orkubúið og var kölluð á viktina og það var mjög fín tala sem kom þar upp,er búin að missa 1,7 kg s,l viku og er orðin 69,9 kg annars er takmarkið að koma sér í gott form andlega og líkamlega
nú bóndinn skráði sig í keppnina og hans program er að þyngja sig,ekki algengt segir Ásdís,en það kemur fyrir,eftir hvíld í dag hjá krílunum fórum við í gönguferð í klukkutíma og það var mjög gott að komast út var orðið tími til komin og er við komum heim kl að verða fjögur þá voru þau orðin mjög lúin enda hætt að sofna eftir leikskólann,en þau kúrðu í dágóðan tíma,borðuðu mjög vel fram að hátta tíma varla að þau stoppuðu og fóru í bólið kl átta en Bríet sofnaði ekki fyrr en kl níu hún vildi borða meira og það var helling sem betur fer þá er matarlistin að koma hjá henni
jamm svo er bara að minna aftur á Avon kynninguna hjá mér næsta fimmtudagskvöld,vona að einhverjir geta komist, já svo erum við með tvær tvíburakerrur til sölu það fer lítið fyrir þeim og góðar í bílinn og gönguferðina,svo það má alveg hafa samband ef einhverjar spurningar eru,
en jæja hef nú ekki svo mikið meira að segja og kveð ykkur þar til næst,hafið það nú notalegt saman
kveðja
Um bloggið
Anna Ágústa Bjarnadóttir
222 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hey..bara láta vita að netið er komið í lag hjá mér...ég reddaði þessu bara rétt eftir að þú fórst í morgun:)
kveðja sú á móti
Ásta Björk Hermannsdóttir, 30.9.2008 kl. 12:57
glæsilegt og velkomin aftur á netið
og takk kærlega fyrir spjallið en er búið að finna kvikindið sem hljóp mjög hratt með átta fætur
kveðja frænka á móti
Anna Ágústa Bjarnadóttir, 30.9.2008 kl. 21:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.