Hugleiðing

Færslur mínar í vetur tóku sér hvíld,löngun til að koma hinu ýmsu á blað enduðu ekki sem færsla aðeins í skrifblokkinni,ásamt sála þá ræddum við nýja stefnu og er framtíðin sem fær að ráða ríkjum vonandi þó svo að stundum koma skýin mis dökk,ræddum þær óþægilegu hugsanir og tilfinningar sem koma upp og hvaða leið og lausn finnum við,

GÖNGUFERÐIR

þegar þörfin var sem mest þá var næstum daglega farið ein út fyrir bæjarmörkin og losa sig við það sem  mátti ekki staldra við og valda vanlíðan,eitt skiftið þegar líðan var sem verst og veður ekki gott þá fann ég að ég varð að fara út,áður en ég vissi af þá var ég komin út og stefnan tekin í áttina út í bót,fór gamla malarveginn,snjókomann og smá vindur var bara þægilegt,fann mér svo stein settist aðeins niður á heimleið,var mér litið upp og þægilegt að fá snjóinn umleika andlitið,sá svo að sólin var að gera tilraun með að ná í gegnum snjókomuna,þá gerðist þetta.

                                            sólargeislar og snjókornin féllu saman og umléku mig

                                            mér fannst eins og ég svifi um á skýi fram hjá fjöllum

                                            og dölum,fer á staði sem eru mér bæði kunn og ókunn

                                            sé tré,stórt tré stend fyrir framan það,tréð sýnir mér

                                            það góða,það sýnir mér það sem ég mér býr, 

                                            ég sé gleði,ég sé sorgir,

                                            tréð fellur saman og hæðir blasa við,

                                            þar eru breytingar  

                                            til hinns betra,mér líður vel.

                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            

                                

ég hef verið með skriftarbók í vetur og hún er ávalt nálægt mér og í hana skrifa ég það sem dettur í hug,meira að segja þegar ég fer ein í gönguferðirnar,,,það hætti að snjóa og ég dreif mig heim og leið bara nokkuð vel,börnin voru í skóla og undir teppi með kakó og skrifbókina skrifaði ég gönguferðina niður,

sála fannst þetta fín hugmynd að koma frá sér vanlíðan sem mér finns virka vel,

þegar ég finn fyrir að erfiðleikar eru þá segi ég við sjálfan mig,komdu þessu frá þér og skrifbókin tekin upp,finn fyrir slökun,að geta útilokað utankomandi truflun,,,,, fá orð bera minnstu ábyrgð,,,,þá er bara að reima skóna taka sér stafi í hönd og bókina í vasann og rölta út,

hef líka notið þess vel að fara gönguferðir með vinkonu og það er nú ýmislegt spjallað sem fær mann sko til að Grin út í eitt 

kv og njótið sumarsins

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Anna Ágústa Bjarnadóttir

Höfundur

Anna Ágústa Bjarnadóttir
Anna Ágústa Bjarnadóttir

er heimavinnandi húsfreyja og hamingjusamlega gift,eigum þrjú börn fjölskyldan hefur mikin áhuga á ferðalögum og útivist,heilsurækt og hollum góðum mat,já vera saman með bjartsýnina að leiðarljósi

241 dagur til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 2488
  • IMG 2483
  • IMG 2233
  • IMG 2216
  • IMG 2211

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 19358

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband