leikskóli og orkubúið byrjað í dag eftir sumarfrí

engin útilega s,l. helgi eins og planað var,ekki svo spennandi að fara þegar rigning og vindur út um mest allt land,svo það er svona verið að skoða næstu helgar, en reindar næsta laugardag þá keppir elsta dóttirin til úrslita á pæjumótinu 6 flokks í fótbolta á Ásvöllum og þessa sömu helgi er ættarmót hjá teindamömmu einhversstaðar fyrir ofan Borgarnes hjá eldborg Blush húsfreyjan er með minni sem er orðið rúmlega fertugt og sem betur fer þá veit bóndinn hvert skal halda,og ef við förum þá verður farið upp úr hádegi frá Ásvöllum en þá er áætlað að daman verði búin að keppa,og er mæting snemma þennan morgun og spilaðir þrír leikir,

það er búist við fjölmenni og er löngu búið að skipuleggja dagskrá sem verður allann laugardaginn og er víst mjög góð aðstaða á þessu tjaldstæði,svo að húsfreyjan er með vaxandi hnút í maganum en þetta er áskorun sem þarf að taka,

rólegheit síðustu daga og púkarnir búnir að spyrja mikið um leikskólann sinn og voru mjög mjög W00t í morgun þegar loksins var farið á leikskólann með nýja pollagallann sem keiftur var í gær,og fjörið var svo mikið þegar komið var í stofuna að það átti ekki að gefast tími til að kveðja foreldra sína en allt hafðist þetta að lokum Wink

í orkubúið fór húsfreyjan og tók göngu á bretti og átti líka samtal við orkubústjórann Ásdísi og höfum við ekki sést í fríinu og þegar fleiri en ein kona tala saman þá er sko talað ummm já .

kom heim um kl níu og vakti frumburðinn það er fótboltaæfing kl ellefu en hún vildi gefa sér góðan tíma til að vakna og fá sér morgunverð,svo hlakkar henni mikið til þegar skólinn byrjar aftur,já hvað skildu margir krakkar hlakka til að byrja aftur ? Errm

en nú er bara leti á húsfreyjunni og bara rólegheit í dag,ætla nú kannski að kíkja á hundabúið hjá pabba og frú í dag með púkanna og Lubba og gefa þeim meiri útrás,

hafið það nú notalegt í dag og njótið veðurblíðunnar og rest af sumri

kv húsfreyjan   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Anna Ágústa Bjarnadóttir

Höfundur

Anna Ágústa Bjarnadóttir
Anna Ágústa Bjarnadóttir

er heimavinnandi húsfreyja og hamingjusamlega gift,eigum þrjú börn fjölskyldan hefur mikin áhuga á ferðalögum og útivist,heilsurækt og hollum góðum mat,já vera saman með bjartsýnina að leiðarljósi

335 dagar til jóla

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 2488
  • IMG 2483
  • IMG 2233
  • IMG 2216
  • IMG 2211

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband