bæjarferð snemma í fyrramálið,svo er lítið fótboltamót hér

svona flesta morgna þá þurfum við að vekja börnin þá öll þrjú en þegar það er frí og engin þarf að æða út um kl átta þá eru allir vaknaðir fyrir kl sjö,og í morgun þá var leikskólinn í fríi , starfsdagur , en skóli hjá elstu dóttirinni,stundum eru starfsdagar hjá þessum stofnunum sameinaðir sem er mjög gott fyrir marga foreldra en stundum eru þeir ekki sameinaðir,nú krílin í svaka stuði W00t og máttu eiginlega ekki vera að því að setjast við morgunverðarborðið nema mjög stutta stund,það var strax tekið við að skapa hlutverk og voru í leik nánast í allan dag og gáfu sér smástund til að borða en eiginlega á hlaupum,

húafreyjan tók smá bílferð um kl átta í morgun,svona áður en bóndinn fór til vinnu,og náði sér í fréttablaðið,úff kallt úti en klæddi sig vel,dóttirin fór í skólann og bóndinn til vinnu,en við sem heima voru höfðum það notalegt Joyful krílin komin í rólegan leik og húsfreyjan las blaðið ásamt góðum kaffibolla áður en húsverkin voru unnin.

rétt eftir hádegi kom Ásta frænka úr eyjum í heimsókn með dætur sínar og mikið var gaman að hitta þær,og ávalt eigum við frænkurnar skemmtilegt spjall og mikið gaman hjá okkur LoL stefnan er sett á aðra heimsókn áður en þær fara aftur til eyja eftir rúma viku,frænka ætlar nefninlega að muna eftir útigalla sem hún ætlar að lána litlu kríli á þessu heimili en það er til annar alveg eins eftir eldri dótturina og eldri dóttir frænku átti einmitt alveg eins galla og sama númer já margt áttu þessar frænkur eins og margt af því var algjör tilviljun,jamm við nokkuð líkar þegar kom að kaupum á fatnaði á stelpurnar.

en við hjónin fórum ferð í Bónus í Njarðvík og gerðum fín kaup þar,en að venju þá var búið að lesa um tilboðin í blaðinu og sumt af því rataði í körfuna,krílin mjög stillt og voru montin með það þegar við komum aftur í bílinn SmileSmile

þegar við komum heim um kl að verða sex, þá fór bóndinn á æfingu og húsfreyjan hafði það notalegt í um klukkutíma en tók þá til kvöldmat og steikti hamborgara og skar niður fullt af grænmeti og kunnu krílin vel að meta það og var það forréttur þeirra fyrir borgaranna,eftir matinn þá fóru þau í bað og voru sofnuð rétt rúmlega hálf níu,eldri dóttirin fór ásamt pabba sínum á fótboltaæfingu með old boys.en húsfreyjan skellti sér í sturtu,og er svo bara að blogga aðeins fyrir háttinn en er eiginlega orðin nokkuð lúin og langar mikið að komast í bólið og Sleeping þar til kl átta í fyrramálið,en við ætlum í bæjarferð kl níu og fara í Breiðholtið en húsfreyjan fer svo með frúnni á þeim bæ á vinnustaðin hennar sem heitir Neglur og List og þar ætlum við að verja rúmum klukkutíma saman og þá er dekur hjá húsfreyjunni í nöglum,já aðeins að lagfæra og setja nýtt skraut Joyful

en verðum svo komin heim aftur fyrir kl fimm en þá er lítið æfingamót í fótbolta hjá Gyðu Dögg,og auðvitað fær hún stuðning frá okkur þar,en jæja læt þetta duga í kvöld,hafið það sem allra best um helgina og njótið þess og verjum tíma saman Heart

kveðja 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Anna Ágústa Bjarnadóttir

Höfundur

Anna Ágústa Bjarnadóttir
Anna Ágústa Bjarnadóttir

er heimavinnandi húsfreyja og hamingjusamlega gift,eigum þrjú börn fjölskyldan hefur mikin áhuga á ferðalögum og útivist,heilsurækt og hollum góðum mat,já vera saman með bjartsýnina að leiðarljósi

334 dagar til jóla

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 2488
  • IMG 2483
  • IMG 2233
  • IMG 2216
  • IMG 2211

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband