28.10.2008 | 22:30
afmælissúpu uppskrift
það er svo notalegt að kúra heima þegar kuldi og rok er fyrir utan heimilið og við höfum bara ekkert farið út eftir að leikskóla líkur en það er nú fjör sem betur fer hér heima,krílin komu með skemtilegar myndir heim af leikskólanum sem teknar voru er haldið var upp á afmælið þeirra ætla að láta uppskriftina af súpunni fylgja hér en það er búið að vera að spyrja hvað sé í henni og hér kemur það.
AFMÆLISSÚPA
olía á pönnu en grænmetið er létt steikt áður en það fer í pottinn
1 og hálf tsk karrý
heill hvítlaukur saxaður smátt
1 blaðlaukur skorinn í þunnar sneiðar
1 rauð papríka skorin smátt
1 græn papríka skorin smátt
1 haus brokkolí ekki stór eða hálfur stór,skorin smátt
1 haus blómkál eki stór eða hálfur,skorin smátt
allt steikt á pönnu en það er gott að vera búin að skera allt grænmeti niður og steikja lítið í einu og hræra vel í á meðan og pannan á að vera meðal heit.
í pott fer grænmetið og svo er bætt út í,
400 gr rjómaostur
1 flaska chilli sósa frá Heinz
3 til 4 teningar annað hvort kjúkklinga eða grænmetis
1 peli rjómi
salt og pipar
1 og hálfur líter af vatni
4 kjúkklingabringur skornar smátt og steiktar í gegn á pönnu og kryddað eftir smekk og bætt svo út í súpuna,hrært í á meðan suðan kemur upp en ekki á fullum hita,látið malla í smá stund,
gott að hafa nýbakað brauð með ásamt smjöri og jafnvel osti
það er alveg þess virði að prófa þessa súpu en þessi uppskrift er dálítið stór en það er líka fínt að helminga hana og dugar hún fyrir ca 4 til 5 manna fjölskyldu.
annars er bara allt fínt að frétta héðan,húsfreyjan er að búa til jólagjafir og í gær þá kom Ásta frænka og áttum við skemmtilegt spjall og hún gefur mikið frá sér og styður vel við bakið á húsfreyjunni,og við föndruðum jólagjafir,ætlum að hittast í fyrramálið og gera aðeins meira af föndri og það er bara gaman að eiga góða stund og spjalla um allt og ekkert ásamt kertaljósi og svo er bara að bíða eftir jólalögunum en það má koma desember áður en þau verða spiluð en við stefnum lika á að baka piparkökur og föndra með börnunum í byrjun jólamánaðar,
húsfreyjan fékk símtal í dag frá konunum sem tóku lasermyndir af hnjánum s,l. miðvikudag en læknirinn vill láta taka öðruvísi myndir svo hægt verði að skipuleggja betur þessa vandasömu aðgerð eins og hann sagði það,en verkirnir eru stöðugir í hnjánum en eins og er hafa ekki venjuleg verkjalyf virkað en það er hægt að fá lyf sem virka en þá verður heilabúið frekar dofið og það er nú ekki verið að taka þá áhættu,það verur bara að harka þetta af sér og vona það besta í byrjun nýs árs,en æfingar ganga vel í Orkubúinu og í morgun fékk húsfreyjan hrós frá Ásdísi fyrir þennan vilja og dugnað og hún hvetur mikið áfram og það er frábært að hafa hana og mikill stuðningur frá henni ásamt sá stuðningur sem bóndinn gefur frá sér,
en jæja það er að koma spennu þáttur á ruv en seinni hlutinn er að byrja og þá er bara að bjóða ykkur góða nótt
kveðja
Um bloggið
Anna Ágústa Bjarnadóttir
329 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.