26.10.2008 | 22:29
afmæli,og svo er einhver á vappi hér heima
jæja það er nú ýmislegt búið að gerast síðan síðast,í gær þá urðu krílin okkar þriggja ára og héldum við veislu í tilefni dagsins buðum við ættingjum og vinum en ekki gátu allir komið en fullt af fólki hér hjá okkur,við elduðum gómsæta súpu og fengum mikið hrós fyrir og í eftir rétt var súkkulaðiterta og ekta gamaldags rjómaterta ásamt heitu súkkulaði og rjóma krílin fengu gjafir bæði leikföng og fatnað svo bæði börn og foreldrar eru ánægð með daginn já elsta dóttirin fékk líka gjöf frá vinkonu okkar sem kom úr ferð frá Bandaríkjunum s,l. þriðjudag,og það gladdi dótturina mikið,síðustu gestir fóru kl rúmlega sjö og þá var eftir að ganga frá ýmsu en það er gott að nota einnota diska,hnífapör og glös þegar veisla er og sérstaklega þegar engin uppþvottavél er ekki á heimilinu,en Ásta frænka mátaði aðeins eldhúsvaskinn í veislunni og fær hún fyrir það þarf aðeins að vaska sumt upp,
en það má nú ekki hafa áhrif á börnin og þegar halda á afmælisveislu þeirra en gumpurinn var frekar kvíðin fyrir veislunni og það ágerðist nóttina áður og varði fram að gærkveldi,svaf lítið og var með magaverki,ógleði,höfuðverk ör hjartsláttur en varð að standa mig en reyndi að blanda geði við fólkið þó svo að ekki var staldrað lengi við langaði að spjalla en það litla sem gumpurinn sagði kom brösugt út,
elsta dóttir okkar var með næturgest hjá sér það var frænka hennar úr Breiðholtinu en foreldrar hennar komu svo um sex leitið í dag,við buðum þeim í mat en við ákvöðum í morgun að elda aftur súpuna sem við buðum upp á í gær og hún var alveg rosalega góð og hún kláraðist ásamt bökuðu brauði með smjöri með,krílin voru sofnuð kl að verða átta og voru í nýjum náttfötum sem voru sett í þvottavél í gærkveldi,alsæl og ánægð,
á sunnudagskvöldum á ruv er góð dagskrá svona til að byrja með,svartir englar en sú þáttaröð endaði í kvöld og svo magnaður viðtalsþáttur Evu Maríu og í kvöld tók hún viðtal við Stefán Ólafsson handboltakappa með meiru,gumpurinn var búin að bíða eftir þessu viðtali og ætlaði ekki að missa af því,en þegar strákarnir okkar kepptu á ólýmpíuleikunum þá var vel fylgst með strákunum og viðtlaðið sem var tekið við Stefán fyrir úrslitaleikin var ótrúlegt það snerti gumpinn mikið og viðtalið í kvöld það var magnað já eitt það magnaðasta viðtal sem Eva hefur tekið og erum mörg þeirra góð,persóna Stefáns heillaði gumpinn alveg óskaplega mikið svo mikið að það situr sem fastast og er ekki að fara neitt,á ekki til orð yfir hvernig hægt sé að túlka þennann ótrúlega mann,það væri mjög gaman að spjalla við hann,
nú hér á bæ er að venju mkið fjör og upp á síðkastið hefur einhver eða einhverjir sem eru ekki í okkar lifandi lífi að láta vita af sér,og hefur gumpurinn orðið varhluta af því svo ekki sé meira sagt,það er eða einhverjir mikið á ferðinni standa í dyragættum,á ferð um íbúðina,og í dag var gumpinum mikið brugðið,var að vaska upp þá var allt í einu staðið fyrir aftan gumpinn og plásið kröftuglega á hálsinn og í eyrað,gumpurinn rann kallt vatn milli skins og hörund og leit í kringum sig en enginn var nálagt en fór fram að ath hvar börnin voru en litla dóttirin var ennþá að horfa á stubbanna og sat sem dáleidd í sófanum með kleinu og mjólk,stóru stelpurnar inni í herbergi með lokaða hurð en feðgarnir voru ekki heima,þetta var mjög óðægilegt svo gumpurinn bað til þann sem þar var að verki að láta sig vera,og vona að það verði áfram,
framundan er ný vika og örugglega verður margt um að vera,ætla í Orkubúið í fyrramálið og á svo von á að hitta´Astu frænku og í væntum verður örugglega fróðlegt og skemmtilegar umræður og í vikunni byrja aftur fótboltaæfingar hjá elstu dóttur okkar og það er komið spennufall þvílík tilhlökkun hjá henni,
en læt þetta duga í kvöld það er að koma nótt og ferð í bólið skamt undan,en hafið það sem allra best og látið ykkur líða vel og njótið þess að vera til,við vitum eki hvenar það er orðið of seint
góða nótt og vel
Um bloggið
Anna Ágústa Bjarnadóttir
329 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.