11.4.2008 | 21:55
ætlaði í gönguferð í kvöld og pissusetuklóset tekið í notkun
ásamt Sigríði frænku svo er gumpurinn kom til frænku þá komst hún ekki börnin hennar , 4 ára tvíburastrákar, voru ekki hressir það er eitthvað að angra þá svo frænka komst ekki svo gumpurinn gekk smá spöl í ca tuttugu mín og kom svo heim, kláraði að horfa á útsvar og er svo að kíkja með öðru auga á bíómynd á ruv, og blogga aðeins í leiðinni
elsta dóttirin er að koma sér í háttinn og bóndinn þarf að fara að gera við í björgunarbátnum eftir smástund, svo er gumpurinn að fá sér kalda , bjór, læt duga hámark tvo í kvöld ætla svo í bólið ekki seinna en kl ellefu, dagurinn í dag var með hefðbundnu sniði börnin sváfu vel og voru MJÖG fjörug í dag, Sölvi Örn er aftur að fá áhuga fyrir að pissa í koppinn en uppgötvaði svo að það er til pissusetuklósetið og þar getur hann setið og setið og setið þó svo hann sé búin að pissa ekkert smá sport að sitja hátt uppi eins og hann segir mjög skírt og er mjög ánægður
já og Bríet Anna er voða dugleg við þessar athafnir fer mörgum sinnum á koppinn en mátaði pissusetuklósetið en situr ekki lengi þar frekar en á koppnum, já svo er líka spennandi að vera í brók og ekki verra að það sé stubbabrók, Gyða Dögg átti þær einu sinni, Bríet Anna er oft í brók á daginn en Sölvi Örn hefur ekki mikið fengist til að prufa brók en er spenntur fyrir stubbabrók og er stelpubrók en í dag þá mátaði hann strákaboxer , þær eru líka frá Gyðu Dögg hún átti þó nokkuð af strákafötum hennar val, jú honum þótti voða skrítið að vera í brók hló voða mikið og fann greinilega að það sem dinglar á milli fóta hans dinglar meira en venjulega þegar engin er bleijan til að halda við, hann vill voða lítið vera bleijulaus en fyndinn var strákurinn
já svona stundir og margar aðrar vill gumpurinn ekki missa af svo voru börnin sofnuð kl hálf átta eftir kvöldverð og bað,
jamm en þetta dugar í kvöld gumpurinn ætlar að horfa á law and order kl tíu og bíður ykkur góða nótt
p,s.
takk fyrir hrósið fyrir orkubitanna Ásta frænka
alltaf gott að fá hrós
njóttu orkubitanna
Um bloggið
Anna Ágústa Bjarnadóttir
154 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.