31.3.2008 | 20:27
gekk nánast í fangið á
vinkonu er gumpurinn varð að fara í búðina í dag, að venju þá fékk gumpurinn munnræpu loksins er rekist er á sjaldséða vinkonu, sorry vinkona ef gumpurinn var og lét dæluna ganga
það vantaði margt en í þetta sinn var það allra nauðsynlegasta verslað, bóndinn komin með upp og niður í gærkveldi hann sem verður alldrei veikur,og hafa heimsóknirnar á wc minkað eftir hádegi,Sölvi Örn gubbaði einu sinni í morgun hann hafði ekki gubbað í sólahring er búin að borða dálítið, epli,bananna,ristað brauð,vatn og mjólk.Bríet Anna er búin að vera hitalaus síðan í gærkveldi og Gyða Dögg sloppið vel ennþá
gumpurinn er að skána en ekki er nú orkan mikil, hitalaus í dag hóstinn að minka en ennþá verkur í brjóstholinu, og búið að vera helling að gera í dag með börnin, fór svo í foreldraviðtalið á leikskólanum, það styttist í að börnin séu búin að vera ár , 1 júni næstkomandi , og gekk viðtalið mjög vel krílin mín standa sig mjög vel og við erum ánægð með leikskólann
börnin sofnuð kl hálf átta orðin mjög þreytt, gátu borðað hafrakodda og lggplús, bóndinn búin að sofa nánast í allan dag, Gyða Dögg búin að fara í skólann,sund og á fótboltaæfingu, svo nú er komið kvöld og gumpurinn mjög lúin eftir daginn á eftir að brjóta saman þvott ætla að gera það yfir sjónvarpinu rúmlega kl átta, ekki er vanþörf á að íbúðin þurfi alsherjar hreingerningu síðan fyrir páska hefur lítið verið hægt að þrífa en því miður þá fara óhreinindin ekkert
en það bíður bara betri tíma gumpurinn ætlar að gefa sér tíma í að jafna sig og hlúa fyrst og fremst að fjölsk meðan á veikindunum stendur, ekki það að sé ekki hægt að komast leiðar sinnar nei nei það er vaskað upp,sett í þvottavél og gólf sópuð, lífið sem sagt er vonandi að fara að komast í eðlilegar horfur
gumpinum hefur verið að pæla dálítið í að fara að gefa sér aðeins meiri tíma í að komast út fyrir heimilið, gaman væri að geta stofnað klúbb , var einu sinni í saumaklúbbi , hist nokkrar konur með svipuð áhugamál og getað spjallað saman, föndrað eða saumað, og jafnvel gæt sér á smá kræsingum ef einhverjar konur hafa áhuga þá endilega hafið samband
jæja ætli það sé ekki komin tími á að takast á við fjall af þvotti, ætla svo í góða sturtu og hafa það notalegt, og endilega gerið það líka njótið samvista með fjölsk og vinum,
frá gumpinum
Um bloggið
Anna Ágústa Bjarnadóttir
154 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.