30.9.2014 | 11:37
tími kerta og kakó að renna upp
ætla púkarnir mínir að verða sannspáir í morgun er við sátum og nutum morgunverðar þá barst talið að nú styttist í 9 ára afmælið og það er greinilegt að dagatalið hefur verið lesið eða smáa letrið sem til greinir hvað gerist vissa daga, og viti menn afmælisdagurinn þeirra er 25 okt en þau vita að fyrsti vetra dagur ber upp á þann dag, það gerist reyndar oft, en umræðan var á þá leið að fyrsti snjórinn kæmi þann dag,kannski fyrir þann dag ,við foreldrarnir litum á hvort annað og sama hugsun laust upp, ææi vonandi ekki snjór strax
svo ók minn bóndi til sinnar vinnu og við urðum svo samferða í skóla og frúin í ræktina, ekki var langt liðið á æfinguna en mikið úrhellti drundi á stóru glugganna sem þekja einn vegginn í ræktinni sem er á efri hæð í íþróttahúsinu og sundlaugin blasri við,en allt í einu var varla hægt að heyra í tónlistinni því risa hagl skullu á glugganna
jamm þannig byrjaði þessi morgun, síðasti dagur september mánaðar
annars höfum við haft það fínt þessa daganna, helgin í rólegheit svona framan af,laugardagurinn í slökun ,bóndanum var boðið á sjávarútvegs sýninguna og við höfðum það gott heima,reyndar förum við dóttirinn sú elsta saman í ræktina á laugardögum, en sunnudagurinn var frábær og veðrið líka þá var skellt sér á æfingu í Þorlákshafnar brautina og notið dagsins þar, grjótherinsuð púkabrautin og þau hjóluðu í henni á fjórða tíma,tímavörðurinn og grjóttínarinn,,móðir púkanna passaði upp á að vatn,tímatöku og grjót týnslu, þau eldri og reyndari hjóluðu í stóru brautinni og enduro brautinni, og slatti að fólki kom og hjóluðu þessa helgi, enduðum svo daginn á kaffi og lummum hjá vina og hjólafjölskyldu hér í bæ
vonandi er veturinn ekki alveg við bæjar dyrnar en haustið er greinilega komiðmeð tilheyrandi roki og rigningu og gangstígar þakin laufum.
njótið vikunar
Um bloggið
Anna Ágústa Bjarnadóttir
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.